Bikarmóti í skíðagöngu frestað um helgina

Skíðagöngunefnd SKA hefur ákveðið að fresta bikarmótinu í skíðagöngu sem vera átti núna um helgina á Akureyri.
Þessi ákvörðun er tekin í ljósi slæmrar veðurspár fyrir Hlíðarfjall og slæmra akstursskilyrði (vindur og hálka) fyrir þá sem væntanlegir eru/voru lengra að.
Í samráði við mótanefnd SKÍ hefur ný dagsetning verið ákveðin 20. - 22. febrúar.
Sent verður nýtt mótsboð á næstu dögum með uppfærðri dagskrá og óska eftir nýrri skráningu í framhaldi af því.