Byrjendanámskeið fyrir fullorðna

Byrjendanámskeið fyrir fullorðna halda áfram í apríl.

Kennt verður næstu tvo fimmtudaga, 3. og 10. apríl, og er verðið eingöngu kr. 5.000 fyrir skiptið. Innifalið er kennsla, búnaður og aðgangur að lyftum.

Nú er tækifærið til að taka skíða- og brettamennskuna föstum tökum. Námskeiðin eru sem áður segir á fimmtudögum frá kl. 17.00-18.30. Nánari upplýsingar og skráning í síma 462-2280 eða á skidaskoli@hlidarfjall.is