Coke mótið í skíðagöngu og Páskatrimm

Hið árlega Coke mót í skíðagöngu fer fram í dag, Skírdag.

Mæting er við gönguhúsið í Hlíðarfjalli og hefst mótið kl. 13.00. Keppt er með frjálsri aðferð.

Allir velkomnir!

Páskatrimm SKA og Flugfélags Íslands í skíðagöngu verður haldið á páskadag kl. 14.00. Hefðbundin aðferð.

Hér verða ALLIR að vera með. Hægt að velja á milli mismunandi vegalengda.

Dregið verður um flugferð innanlands og páskaeggjum verður deilt út.