Skíðavertíðin að hefjast

Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli opnar fimmtudaginn 3. desember og verður opið frá kl. 18 - 21. Skilyrði til snjóframleiðslu eru góð næstu daga þar sem mikið frost er í kortunum.

Forsala vetrarkorta verður fram að opnun á Akureyri Backpackers í göngugötunni. Vetrarkort fyrir fullorðna er kr. 34.650 í stað 45.000 og kr. 11.500 í stað 12.000 fyrir börn.