World Snow Day sunnudaginn 15. janúar

World Snow Day / Snjór um víða veröld sem alþjóða skíðasambandið FIS stendur fyrir er á sunnudaginn 15. janúar. Í tilefni þess verður blásið til fagnaðar í Hlíðarfjalli og munu börn og unglingar upp að 18 ára aldri frá frítt í allar lyftur og einnig verður 20% afsláttur fyrir alla gesti af leigubúnaði í skíðaleigunni.

Margt verður um að vera s.s.

- Ratleikur í samstarfi við SKA frá kl 13:00-14:30

- Verðlaunaafhending fyrir ratleik kl. 14:30

- Heitt kakó í boði milli kl. 14:30-15:30

- Klossadiskó frá kl. 14:30-15:30