Brettanámskeið fyrir fullorðna

Byrjendanámskeiðin fyrir fullorðna halda áfram og nú ætlum við að bjóða upp á brettakennslu líka. Kennt verður alla fimmtudaga og er verðið eingöngu kr. 5.000 fyrir skiptið. Innifalið er kennsla, búnaður og aðgangur að lyftum. Athugið að hvert námskeið er stakt og þarf ekki að mæta á þau öll þó það sé að sjálfsögðu velkomið. Námskeiðin eru sem áður segir á fimmtudögum frá kl. 17-18.30. Nánari upplýsingar og skráning í síma 462-2280 eða á skidaskoli@hlidarfjall.is

Photo: Það er aldrei of seint að byrja Skíðaskólinn í Hlíðarfjalli býður upp á skíðanámskeið ætlað fullorðnum byrjendum á fimmtudögum. Markmið námskeiðsins er að iðkendur nái undirstöðuatriðum skíðaíþróttarinnar og geti notið þess að renna sér í brekkum Hlíðarfjalls hjálparlaust. Tilvalið fyrir þá sem ekki hafa prófað þessa hvítu list eða það er orðið langt um liðið síðan síðast. Kennslutími 17:00-18:30 Námskeiðsgjald eru 5000 kr. skiptið Innifalið í verði er kennsla, leiga á búnaði og aðgangur að lyftum. Skráning og nánari upplýsingar í síma 462-2280 eða skidaskoli@hlidarfjall.is