Kvennaskíðagöngunni frestað til sunnudagsins 15. mars

Kvennaskíðagangan - Í spor Þórunnar Hyrnu. Sunnudaginn 15.3.15
Upphitun hefst klukkan 12.50 en gangan hefst klukkan 13.00 og gengið er án tímatöku.
Skráning fer fram í gönguhúsi norðan Skíðastaða frá klukkan 11.30Þegar í mark er komið verða ýmsar veitingar í boði og glæsilegútdráttarverðlan.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir mæðgur, vinkonur, saumaklúbba, vinnustaðahópa, hlaupahópa og fleiri að koma í fjallið og eiga skemmtilega stund saman.