Skíðagöngunámskeið SKA og TVG-Zimsen

TVG-Zimsen endurtekur leikinn og býður í samstarfi við Skíðafélag Akureyrar upp á stutt kynningarnámskeið í skíðagöngu fyrir alla áhugasama. Námskeiðin verða haldin á skíðagöngusvæðinu í Hlíðarfjalli  fimmtudagana 9. janúar og 23. janúar, kl. 18:00 og 19:30 og eru þátttakendum að kostnaðarlausu.  

Gott er að mæta í skíðagönguhúsið 15 mín. fyrr.

Skíði, skór og stafir á staðnum fyrir þá sem þurfa.