Töfrateppið slær í gegn og brúar kynslóðabilið

Það var mikið líf og fjör hér hjá okkur í Hlíðarfjalli um hátíðarnar. Um 6.500 manns komu í fjallið og nutu hressandi útiveru í fallegu en á köflum ansi köldu veðri.

Nýja yfirbyggingin á Töfrateppinu sló rækilega í gegn og var áberandi að nú renndu fleiri fullorðnir sér í brekkunni þar en oft áður. Því má segja að yfirbyggingin hafi afmáð allt kynslóðabil og skemmta ungir sem aldnir sér hið besta saman í þessari skemmtilegu braut sem hentar jafnt byrjendum sem lengra komnum. Lýsingin í yfirbyggingunni gefur Töfrateppinu skemmtilegan blæ og öðruvísi stemningu þegar litbrigðin breytast.

Því miður er búið að vera lokað í Hlíðarfjalli síðan á mánudag því hlýindin síðustu daga hafa gjörbreytt aðstæðum efra en það er kuldi í kortunum og starfsfólk Hlíðarfjalls telur þónokkuð góðar líkur á að staðan batni um eða upp úr næstu helgi þótt spáin geti auðvitað breyst til hins verra á næstu dögum, þ.e.a.s. með áframhaldandi hláku. „Við viljum kulda!“ kyrjum við nú hér daglega í Hlíðarfjalli.