Andrésarleikunum hefur verið aflýst.

ANDRÉSARLEIKUNUM 2021 AFLÝST!
Það ríkir mikil sorg hjá aðstandendum Andrésar andar leikanna að hafa aftur í ár þurft að aflýsa leikunum. Og nú á allra síðustu stundu.
Undanfarna daga og allt fram á síðustu stundu hefur framkvæmdanefnd leikanna leitað leiða í samráði við sóttvarnaryfirvöld, heilbrigðisráðuneytið, Almannavarnir, bæjaryfirvöld, ÍSÍ, SKÍ og SKA til að hægt verði að halda leikunum til streitu í samræmi við gildandi reglur. Á fundi þessara aðila í hádeginu í dag þriðjudag voru allir sáttir við það sóttvarnaplan sem leggja átti fyrir. Það var svo núna seinnipartinn að forsendur breyttust þar sem Almannavarnir og sóttvarnarlæknir lögðust gegn því að leikarnir yrðu haldnir þar sem það felur í sér of mikla hættu á smiti m.v. það ástand sem ríkir í landinu.
Hjá undirbúningsaðilum stóð aldrei annað til en að halda leikana með allra ítrustu sóttvarnarráðstafanir að leiðarljósi. Það eina sem vakti fyrir Andrési var að leyfa börnunum að koma saman innan þeirra takmarkana sem gilda og eiga þannig frábæra daga í Hlíðarfjalli! Það er hinsvegar núna úr okkar höndum og við beygjum okkur undir sóttvarnar tilmæli yfirvalda sem kveður á um að forðast skuli alla hópamyndanir og blöndun á milli hópa.
Við biðjumst hinsvegar velvirðingar á að upplýsingastreymi var e.t.v. ekki nægjanlegt s.l. sólarhringa en það stafar af þeirri óvissu sem hefur ríkt. Við trúðum því fram á síðustu stundu að hægt væri að halda leikana.