Cocemót fimmtudaginn 5. apríl 2012

Hið árlega Cocemót fer fram í Hlíðarfjalli fimmtudaginn 5. apríl kl. 13.00. Keppt verður í flokkum 14 ára og yngri og með frjálsri aðferð. Þetta er flott æfing fyrir þau sem eru að fara á Andrés en einnig verður keppt í flokkum yngri en 6 ára. Að sjálfsögðu verða veitingar í boði á eftir! Allir  velkomnir  : )