Andrésar Andarleikarnir verða settir í íþróttahöllinni á Akureyri í dag miðvikudaginn 23. apríl og standa yfir dagana 24. -26. apríl 2025.
Leikarnir hafa verið svo til árlegur viðburður í Hlíðarfjalli frá árinu 1976. Þetta er fjölmennasta skíðamót landsins með hátt í 1.000 keppendur á aldrinum 4. – 15. ára. Keppt er í alpagreinum, skíðagöngu og á snjóbrettum og eiga fjölmargir skíðamenn ljúfar minningar frá leikum liðinna ára.
Verð á lyftumiðum á Andrésar Andarleikana eru kr. 12.100 fyrir fullorðna og 3.090 fyrir börn. Hægt er að kaupa miða á netinu og einnig í miðasölu Hlíðarfjalls.
Dagskrá leikanna má sjá hér