Forsala vetrarkorta er hafin

Forsala vetrarkorta er hafin í dag, 15. nóvember !
 
Eins og síðustu ár verður hægt að tryggja sér betri kjör á vetrarkortum í Hlíðarfjalli í forsölu frá 15. nóvember fram að opnun. Forsalan fer fram hér á heimasíðu okkar hlidarfjall.is með því að smella á “Kaupa miða í fjallið” efst í hægra horninu.
 
Þrátt fyrir agalega veðurtíð síðustu vikur þá lítur út fyrir að veturinn sé loksins að banka uppá næstu daga, við vonum það allavega 🙌🏻 Vonandi snjóar hressilega næstu daga en við erum líka með allt klárt í að hefja snjóframleiðslu strax og veður leyfir.
 
Hlökkum til að sjá ykkur í vetur !