Í spor Þórunnar Hyrnu 2011

Meginmál

Laugardaginn 16. apríl verður kvennaskíðagangan í spor Þórunnar Hyrnu haldin í fjórða sinn í samstarfi við Skyr í Hlíðarfjalli við Akureyri.

Þar býðst konum á öllum aldri að hreyfa sig og njóta útivistar með því að skella sér á gönguskíði.

Hægt verður að velja um tvær vegalengdir, 3,5 og 7 km.  Þátttakendur geta lagt af stað á bilinu 13.00 og 13.30 og gengið er án tímatöku. Þátttökugjald er kr. 1.500, frítt er fyrir 14 ára og yngri. Allir eru hvattir til að mæta í búningum!

Skíðaleiga er á staðnum og einnig er hægt að láta smyrja skíðin á staðnum, kr. 1.000,-

Skráning: Á keppnisdegi frá kl. 11.30 í gönguhúsi norðan Skíðastaða

Þegar í mark er komið verða veitingar í boði, glæsileg útdráttarverðlaun og verðlaun fyrir besta búninginn! 

Upplýsingar á mótsdegi í síma 878 1624