Laugardaginn 23. febrúar býðst konum kjörið tækifæri til að hreyfa sig og njóta útivistar með því að skella sér á gönguskíði í Hlíðarfjalli.
Kvennaskíðagangan – Í spor Þórunnar Hyrnu – verður nú haldin í sjötta sinn. Sem fyrr verður hægt að velja um tvær vegalengdir, 3,5 og 7 km. Upphitun hefst klukkan 12.50 en gangan hefst klukkan 13.00 og gengið er án tímatöku. Þátttökugjald er kr. 1500, frítt er fyrir 14 ára og yngri. Skíðaleiga er á staðnum og einnig er hægt að láta smyrja skíðin gegn vægu gjaldi. Skráning fer fram í gönguhúsi norðan Skíðastaða frá klukkan 11.30
Þegar í mark er komið verða ýmisar veitingar í boði og glæsileg útdráttarverðlan. Þetta er kjörið tækifæri fyrir mæðgur, vinkonur, saumaklúbba, vinnustaðahópa, hlaupahópa og fleiri að koma í fjallið og eiga skemmtilega stund saman.