Lengri opnunartími á fimmtudögum í vetur

Lengri opnunartími á fimmtudögum í vetur, opið 14-21.
 
Í vetur ætlum við í Hlíðarfjalli að lengja opnunartímann á fimmtudagskvöldum til 21 til að bjóða gestum uppá lengri kvöldskíðun. Kvöldin geta oft verið besti tími dagsins til að renna sér og þetta passar vel með endurnýjun og viðbótum á lýsingu sem er í gangi í fjallinu.
 
Hlökkum til að sjá ykkur á lengri fimmtudögum í vetur, nú má snjóa í kaf ❄️