Þann 3. desember næstkomandi heldur SKA Ofurgöngu 2011, en það verður í þriðja skipti sem mótið er haldið.
Ofurganga SKA er skíðagöngukeppni þar sem markmiðið er að
ganga sem flesta kílómetra.
Startað verður kl. 10 með hópstarti, markinu verður lokað
klukkan 15 og keppendur ljúka þeim hring sem þeir eru byrjaðir á.
Í þessu móti gilda almennar reglur um mótahald eins og t.d.
einungis eitt skíðapar á hvern keppanda, mönnum
er frjálst að smyrja skíðin sín sjálfir, án aðstoðar.
Keppendum er frjálst að stoppa eins oft og þeim hentar eða skipta göngunni upp í eins marga hluta og hverjum og einum hentar.
Keppt verður í kvenna- og karlaflokki 16 ára og eldri.
Drykkjarstöð verður við gönguhúsið og
verður boðið uppá orkudrykk,
brauð og súpu.
Þátttökugjald er 1500kr.
Skráning og allar frekari upplýsingar
í netfanginu: ganga@internet.is