Páskatrimm Flugfélags Íslands

Á páskadag er komið að hinu árlega páskatrimmi Flugfélags Íslands og hefst það kl. 14.

Boðið er uppá 3 vegalengdir; 3,5 km og 7,0 km með tímatöku, einnig er hægt að fara frjálsa vegalengd án tímatöku sem hefst líka klukkan tvö. Dregnir verða út ferðavinningar og páskaegg kl. 15 við Gönguhúsið.

Allir hvattir til að mæta.