Skíðaskólinn er allar helgar þar sem boðið er upp á 2 eða 4 tíma kennslu á skíði eða bretti. Einnig verðum við með námskeið fyrir fullorðna byrjendur á fimmtudögum í janúar og jafnvel oftar ef eftirspurn er fyrir hendi. Fyrir þá sem vilja meiri athygli bjóðum við upp á einkakennslu fyrir alla aldurshópa og finnum við þá tíma fyrir hvern og einn í samráði við skíðakennara okkar.