Í dag verður haldið skíðamót frambjóðenda í norðausturkjördæmi til alþingiskosninganna núna í vor. Keppendur frá flestum framboðum hafa boðað komu sína. Keppnin hefst kl. 14 í Hólabrautarbrekku. Ásamt frambjóðendum munu skíðakempur einnig keppa.
Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri verður kynnir.