Dagskrá: Föstudagur 15. febrúar, klukkan 18 – 21:30.
Fyrirlestur um helstu atriði sem þarf að hafa í huga þegar fólki með þroskahamlanir og fólki á einhverfurófi er kennt á skíði.
Laugardagur 16. febrúar, 9:30 – 16:00.
Þátttakendur fá skíðakennslu frá leiðbeinendum
Sunnudagur 17. febrúar, 9:30 – 16:00.
Þátttakendur fá skíðakennslu frá leiðbeinendum.
Allir sem áhuga hafa geta komist á skíði og er fatlað fólk ekki undanskilið. Ef réttur búnaður
og aðstoð er til staðar geta allir verið með. Skíðaiðkun er afþreying styrkir sál og líkama og
sem hentar allri fjölskyldunni. Það er því með stolti sem Vetraríþróttamiðstöð Íslands
og Íþróttasamband fatlaðra í samstarfi við Hlíðarfjall og NSCD, Winter Park Colorado bjóða
upp á skíðanámskeið fyrir einstaklinga með þroskahamlanir og/eða röskun á einhverfurófi.
Námskeiðið er fyrir byrjendur og lengra komna. Sérstök áhersla er einnig á kennslu fyrir
leiðbeinendur og aðra sem vilja læra að aðstoða fatlað skíðafólk.
Aðal leiðbeinandi námskeiðsins Beth Fox, hefur kennt fötluðu fólki á skíði síðastliðin 25 ár. Hún er framkvæmdastjóri National Sports Center for the Disabled (NSCD) sem sérhæfir sig í útivist fatlaðs fólks. Vanir Íslenskir leiðbeinendur verða henni til aðstoðar.