Skíðastaðagangan fer fram laugardaginn 15. janúar í Hlíðarfjalli og hefst kl. 12. Skráning hefst kl 9:30 í Gönguhúsinu eða ganga@internet.is. Verðlaunaafhending og veitingar verða í Íþróttahúsi Giljaskóla kl. 15:30. Keppt verður í eftirfarandi vegalengdum:
- Skíðastaðagangan 24 km, þátttökugjald 2000 kr.
- Skíðastaðagangan 12 km og 4 km, þátttökugjald 13 ára og eldri er 1.500 kr. og 500 kr. fyrir 12 ára og yngri
Vonumst til að sjá sem flesta í Hlíðarfjalli á laugardaginn.