Þá er komið að skiptihelgi skíðasvæðana á norðurlandi. Þeir sem eiga vetrarkort á skíðasvæðinu í
Hlíðarfjalli, Dalvík, Ólafsfirði, Siglufirði og Sauðárkrók geta skíðað að vild á svæðunum um næstu helgi.
Vetrarkortshafar þessara skíðasvæða þurfa að framvísa vetrarkortum sínum í afgreiðslu hvers skíðasvæðis og fá
þá afhenta lyftumiða.
Þetta er þriðji veturinn sem boðið er upp á skiptihelgar og gefur skíða- og brettafólki kost á að heimsækja
nágrannana.
Þetta er þriðja skiptihelgin af 5 en stefnt er að því að vera með eina slíka í hverjum mánuði fram á vor.