Þá er komið að annari skiptihelgi skíðasvæðana á norðurlandi. Þeir sem eiga vetrarkort á skíðasvæðinu
í Hlíðarfjalli, Dalvík, Ólafsfirði, Siglufirði og Sauðárkrók geta skíðað að vild á svæðunum um
næstu helgi. Vetrarkortshafar þessara skíðasvæða þurfa að framvísa vetrarkortum sínum í afgreiðslu hvers skiðasvæðis
og fá þá afhenta lyftumiða.
Þetta er þriðji veturinn sem boðið er upp á skiptihelgar og gefur skíða- og brettafólki kost á að heimsækja
nágrananna.
Þetta er önnur skiptihelgin af 5 en stefnt er að því að vera með eina slíka í hverjum mánuði fram á vor.