Á laugardag kl. 14 verður í fyrsta sinn á Íslandi keppt í svokölluðu slöngusvigi í Hlíðarfjalli. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og Akureyrar etja kappi þar sem fimm slökkviliðsmenn frá hvoru liði renna sér niður brekkurnar í fullum skrúða og halda á brunaslöngu sín á milli.