Alþjóða skíðasambandið FIS stendur fyrir sérstökum degi "World Snow Day" þar sem aðildarþjóðirnar eru hvattar til að hvetja börn til skíðaiðkunar.
Í tilefni dagsins býður Hlíðarfjall öllum í brekkurnar sunnudaginn 22. janúar. Afsláttur í skíðaleigunni.
Skíða-og snjóbrettakennsla frá kl. 12-14 í boði Skíðafélags Akureyrar. Mæting við Nestishús og Gönguhús. Skíðafélag Akureyrar býður upp á kakó við Nestishús og Gönguhús frá kl . 13-14.
Lukkumiðahappdrætti Skíðasambandsins fyrir 12 ára og yngri.