Styttist í opnun

Að gefnu tilefni verður ekki opnað um helgina, það voru aðeins vangaveltur í byrjun vikunnar. Þrátt fyrir allan þann snjó sem er á Akureyri  vantar töluvert uppá að aðstæður séu góðar í brekkunum. Aðstæður eru nú þannig að hægt er að skíða niður Suðurgil og Rennslið á takmarkaðan hátt. Enn vantar töluvert af snjó í Andrésarbrekkuna, Hólabraut og brekkurnar í Stromp. Við stefnum á að opna innan tíðar og munum tilkynna það með um tveggja daga fyrirvara.