Telemark hátíðin verður haldin á laugardaginn 17. mars. Keppni hefst kl. 12 í samhliðasvigi þar sem helstu Telemark kempur landsins etja kappi. fyrir þá sem ekki vita hvað Telemark er þá er það elsti skíðastíll sem til er.
Þegar fólk rennir sér er það með lausan hælinn og hallar sér með innra hnéð niður á skíðið. Hátíðin er mjö lífleg og mikið um framandi og flotta búninga.
Skráning á staðnum við brautina í Hjallabraut.