Þrátt fyrir að veturinn sé ekki að láta mikið á sér kræla eins og er þá bíðum við í Hlíðarfjalli spennt eftir að taka á móti ykkur.
Mikið viðhald hefur farið fram í sumar og haust ásamt endurnýjun og viðbótum á lýsingu. Snjóframleiðslukerfið okkar er allt yfirfarið og klárt til að setja í gang um leið og almennilegt frost mætir.
Hlökkum til að sjá ykkur fyrir norðan !